
Hafa vatnspósti, fyrst það eru þegar vatnslagnir á svæðinu. Væri mögulega hægt að hafa salernisaðstöðu þar sem skólplagnirnar eru. Það er mjög mikilvægt að útbúa minnisvarða um Stelluróló þar sem Stelluróló merkið sem var útskorið er og fleira. Hafa í plexigleri eða eitthvað álíka. Hafa nokkur borð með áföstum bekkjum og hafa ruslatunnur í hæð barnanna.
Vatnspóstur vegna þess að markmiðið er að efla útiveru og hreyfingu. Salerni er þjónusta sem er á mörgum útivistarsvæðum og eflir notkun þess og gæði. Minnisvarði þar sem þetta svæði er rótgróið og mikilvægt að halda í minninguna um stað sem svo margir Kársnesbúar elskuðu og voru á sínum æskuárum. Bekkir með borðum til að efla útivistarsvæðið og auka nýtingu og ruslatunnur til að sporna gegn sóðaskap.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation